Nokia 6600 - Mikilvægar öryggisupplýsingar

background image

Mikilvægar öryggisupplýsingar

Umferðaröryggi

Ekki má nota handsíma við akstur ökutækis. Alltaf skal festa símann í þar til gert hald, ekki
má leggja símann í farþegasæti eða þar sem hann getur kastast til við árekstur eða
skyndilega stöðvun.

Hafa ber í huga að umferðaröryggi gengur fyrir!

Vinnuumhverfi

Hafa ber í huga að farið sé að öllum sérstökum reglugerðum sem gilda á hverju svæði og að
slökkva alltaf á símanum þar sem notkun hans er bönnuð, eða þar sem hann kann að valda
truflun eða hættu.

Síminn notist aðeins í hefðbundinni stöðu.

Til að fylgja viðmiðunarmörkum um áhrif af útvarpsbylgjum skal eingöngu nota aukabúnað
viðurkenndan af Nokia. Þegar kveikt er á símanum og hann borinn á líkamanum skal ávallt
nota símahulstur viðurkennt af Nokia.

Hlutar símans eru segulmagnaðir. Ekki má láta málmefni dragast að símanum og fólk með
heyrnartæki ætti ekki að halda símanum upp að eyranu með heyrnartækinu. Alltaf skal festa
símann í haldinu því málmefni gætu dregist að heyrnartólinu. Ekki má geyma kreditkort eða
aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt símanum því upplýsingar sem þar eru
geymdar gætu þurrkast út.

Rafeindatæki

Flest nýleg rafeindatæki eru varin fyrir útvarpsmerkjum (RF). Þó kunna sum rafeindatæki að
vera óvarin fyrir útvarpsmerkjum frá þráðlausa símanum.

background image

Mikilvægar öryggisupplýsingar

187

Copyright

©

2004 Nokia. All rights reserved.

Gangráðar

Framleiðendur gangráða mæla með því að 20 sm (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli
þráðlauss handsíma og gangráðs til þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun í gangráðinum.
Þessi tilmæli eru í samræmi við sjálfstæða rannsókn og tilmæli frá Wireless Technology
Research. Notendur gangráða:

skyldu alltaf halda símanum í meira en 20 sm (6 tommu) fjarlægð frá gangráðinum þegar
kveikt er á símanum;

skyldu ekki ganga með símann í brjóstvasa;

skyldu nota eyrað sem er fjær gangráðinum til að draga úr líkum á truflunum.

Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal slökkva á símanum tafarlaust.

Heyrnartæki

Tilteknir stafrænir þráðlausir símar geta truflað tiltekin heyrnartæki. Komi til slíkrar
truflunar er ráðlegt að leita til þjónustuveitunnar.

Önnur lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með talin notkun þráðlausra síma,
kann að trufla virkni lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal samband við
lækni eða framleiðanda lækningatækisins til þess að komast að því hvort það sé nægilega vel
varið fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla nánari upplýsinga. Slökkva skal á
símanum í námunda við heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglugerðir þess efnis kveða á um
að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur
verið næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt
upp sett eða ekki nægilega varin (t.d. getur verið um að ræða rafeindastýrða eldsneytisgjöf,

background image

Copyright

©

2004 Nokia. All rights reserved.

188

rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn) rafeindastýrð hraðakerfi, loftpúðakerfi). Hafa skal
samráð við framleiðanda eða umboðsmann hans varðandi ökutækið. Einnig er rétt að leita
upplýsinga hjá framleiðanda um hugsanlegan aukabúnað með ökutækinu.

Skilti

Slökkva skal á símanum ef skilti segja til um það.

Sprengifimt andrúmsloft

Slökkva skal á símanum á svæðum þar sem hætta er á sprengingum og fara að öllum
tilmælum sem sjást á skiltum og leiðbeiningum. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið
sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll.

Notendum er ráðlagt að slökkva á símanum við eldsneytisdælur (á bensínstöðvum).
Notendur eru minntir á að virða takmarkanir á notkun útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum
(svæðum þar sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram), efnaverksmiðjum og þar sem
verið er að sprengja.

Svæði þar sem sprengihætta er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Sem dæmi má
nefna svæði undir þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru geymd eða búin til flutnings;
ökutæki sem nýta fljótandi svartolíugas (própan eða bútan); svæði þar sem í lofti eru efni
eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft; og öll þau svæði þar sem yfirleitt er mælst til
þess að menn slökkvi á bílvélinni.

Ökutæki

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við síma eða setja upp síma í ökutæki. Gölluð
uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera á
tækinu.

Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus símabúnaður í ökutækinu sé rétt
uppsettur og vinni rétt.

background image

Mikilvægar öryggisupplýsingar

189

Copyright

©

2004 Nokia. All rights reserved.

Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og
símann, hluta úr honum eða aukahluti með honum.

Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa hugfast að loftpúðinn blæs út af miklum krafti. Ekki má
setja hluti, þar með talinn uppsettan eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir
loftpúðanum eða á útþenslusvið loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og
loftpúðinn þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.

Notkun símans meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva skal á símanum áður en gengið er
um borð í flugvél. Notkun þráðlausra síma í flugvél kann að skapa hættu við stjórn
flugvélarinnar, rjúfa þráðlaust símasamband og vera brot á lögum.

Ef ekki er farið að þessum leiðbeiningum kann það að leiða til þess að viðkomandi verði
synjað um þjónustu eða henni hætt, hann verði sóttur til saka eða hvort tveggja verði gert.

Neyðarhringingar

Mikilvægt:

Líkt og aðrir þráðlausir símar nýtir þessi sími útvarpsmerki, þráðlaus kerfi og kapalkerfi, auk
notendaforritaðra aðgerða. Því er ekki hægt að tryggja tengingu við hvaða skilyrði sem er.
Því skyldi notandi aldrei treysta eingöngu á þráðlausan síma ef um er að ræða
bráðnauðsynleg fjarskipti (t.d. í bráðatilvikum).

Neyðarhringingar eru ef til vill ekki mögulegar í öllum þráðlausum símkerfum eða þegar
tiltekin símkerfisþjónusta og/eða eiginleikar símans eru í notkun. Hafa skal samráð við
þjónustuveitu á staðnum.

Neyðarhringing:

1. Ef slökkt er á símanum skal kveikja á honum. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé

fyrir hendi.

Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt SIM-kort sé rétt sett í símann.

background image

Copyright

©

2004 Nokia. All rights reserved.

190

2. Stutt er á eins oft og þörf krefur (t.d. til að slíta símtali eða hætta í valmynd o.s.frv.) til

að hreinsa skjáinn og undirbúa símann fyrir hringingu.

3. Valið er það neyðarnúmer sem gildir á viðkomandi stað (t.d. 112 eða annað opinbert

neyðarnúmer). Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4. Stutt er á takkann .

Ef ákveðnir eiginleikar eru í notkun þarf ef til vill að gera þá óvirka áður en neyðarhringing er
möguleg. Fletta skal upp í þessari handbók og hafa samráð við þjónustuveitu á staðnum.

Við neyðarhringingu ber að hafa hugfast að gefa þarf upp allar nauðsynlegar upplýsingar
eins nákvæmlega og kostur er. Hafa ber í huga að þráðlausi síminn er ef til vill eina
fjarskiptatækið á vettvangi slyss – ekki má leggja á fyrr en að fengnu leyfi viðmælandans.

Upplýsingar um vottun (SAR)

ÞESSI SÍMATEGUND ER FRAMLEIDDUR Í SAMRÆMI VIÐ KRÖFUR STJÓRNVALDA UM ÁHRIF
AF ÚTVARPSBYLGJUM.

Farsíminn er útvarpssendir og móttökutæki. Hann er hannaður og framleiddur með tilliti til
leyfilegra marka um áhrif af útvarpsbylgjum (RF) sem alþjóðanefnd um fjarskipti (ICNIRP)
mælir með. Þessar takmarkanir eru hluti ítarlegra leiðbeininga og eru viðmiðunarreglur um
leyfileg mörk útvarpsmerkja sem almenningur geti komist í snertingu við. Þessar
leiðbeiningar voru settar af sjálfstæðum vísindastofnunum með reglubundnu og ítarlegu
mati á viðeigandi vísindarannsóknum. Í stöðlunum eru öryggisfrávik talsverð til að tryggja
öryggi allra, burtséð frá aldri eða heilsufari.

Í staðli um útvarpsbylgjur úr þráðlausum farsímum er notuð mælieiningin SAR (Specific
Absorption Rate). Efri mörk SAR samkvæmt alþjóðlegu leiðbeiningunum eru 2,0 W/kg*.
Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum stöðum þegar síminn sendir af mesta leyfða styrk
á öllum mældum tíðnisviðum. Þó að magn SAR sé mælt á hæsta sendistyrk er SAR-styrkur
símans í notkun oft mun lægri en hámarks sendistyrkur. Það er vegna þess að síminn er
hannaður til að vinna á mörgum styrkstigum en notar hverju sinni aðeins þann styrk sem til

background image

Mikilvægar öryggisupplýsingar

191

Copyright

©

2004 Nokia. All rights reserved.

þarf til að ná sambandi við símkerfið. Almennt gildir að því nær sem notandinn er grunnstöð,
þeim mun minni styrk notar síminn.

Hæsta SAR-gildi fyrir þessa símategund þegar hún var mæld við notkun við eyrað eru
0.80W/kg. Þó að SAR-mælingar geti verið breytilegar eftir símtegundum og stöðum eru þær
allar í samræmi við viðeigandi alþjóðlegar leiðbeiningar um snertingu við útvarpsmerki.

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun í hefðbundinni
stöðu við eyrað eða þegar það er haft að minnsta kosti 1,5 sm frá líkamanum. Ef taska,
beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið á líkamanum við notkun ætti slíkur
búnaður ekki að innihalda málm og halda tækinu að minnsta kosti 1,5 sm frá líkamanum.

*Efri mörk SAR fyrir almenna notkun farsíma eru 2,0 wött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á
hver 10 grömm af líkamsvefjum. Í leiðbeiningunum eru talsverð öryggisfrávik til að auka
vernd almennings og taka tillit til frávika í mælingum. SAR-gildi kunna að vera breytileg
milli landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu og tíðnisviði. Upplýsingar um SAR í öðrum
löndum má finna í upplýsingum um vörur á www.nokia.com

background image

Atriðaskrá

Copyright

©

2004 Nokia. All rights reserved.

192