Öryggisatriði
11
Copyright
©
2004 Nokia. All rights reserved.
Öryggisatriði
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Brot á reglum kann að vera hættulegt og getur varðað
við lög. Nánari upplýsingar er að finna í handbókinni.
Ekki má kveikja á símanum þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar
sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Ekki má nota handsíma við akstur.
TRUFLUN
Allir þráðlausir símar geta orðið fyrir truflunum sem hafa áhrif á notagildi þeirra.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM
Fylgja ber öllum settum reglum. Slökkva skal á símanum nálægt læknisbúnaði.
HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM
Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki má nota símann nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti
eða sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Ekki má nota símann þar sem verið er að sprengja. Virða skal takmarkanir og fara
að settum reglum.
Copyright
©
2004 Nokia. All rights reserved.
12
NOTIST AF SKYNSEMI
Notist aðeins í hefðbundinni stöðu. Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við símabúnað.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI
Síminn er ekki vatnsheldur. Halda skal símanum þurrum.
ÖRYGGISAFRIT
Brýnt er að búa til öryggisafrit af öllum mikilvægum gögnum.
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI
Þegar síminn er tengdur öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega,
einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
HRINGING
Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Símanúmerið ásamt
svæðisnúmeri er fært inn og síðan er stutt á
. Símtali er lokið með því að
styðja á
. Stutt er á
til að svara hringingu.
NEYÐARHRINGINGAR
Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Stutt er á
eins oft og
þörf krefur (til dæmis til að slíta símtali eða hætta í valmynd o.s.frv.) til að
hreinsa skjáinn. Neyðarnúmerið er valið og síðan er stutt á
. Gefa skal upp
staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnum fyrirmælum þess efnis.
Öryggisatriði
13
Copyright
©
2004 Nokia. All rights reserved.
Þegar aðgerðir þessa tækis eru notaðar skal hlýða öllum lögum og virða einkalíf og lögmæt
réttindi annarra.
■ Sérþjónusta
Þráðlausi síminn sem lýst er í handbókinni er samþykktur til notkunar á EGSM 900 og
GSM 1800 og 1900.
Nokkrir eiginleikanna sem lýst er í þessari handbók eru kallaðir sérþjónusta. Þetta er sérstök
þjónusta sem hægt er að panta hjá þjónustuveitu. Slíka þjónustu er aðeins hægt að nýta sér
að fenginni áskrift hjá þjónustuveitu á staðnum sem einnig veitir upplýsingar um notkun
hennar.
Þessi sími styður samskiptareglur WAP 2.0 (HTTP og SSL) sem keyra á samskiptareglunum
TCP/IP. Sumar aðgerðir í þessum síma eins og MMS, vafri, tölvupóstur, SyncML, og heimtaka
efnis í vafra eða með MMS eru háðar símkerfisstuðningi við viðkomandi tækni.
Til athugunar: Hugsast getur að sum kerfi styðji ekki séríslenska stafi og/eða
þjónustu.
■ Hleðslutæki og aukahlutir
VIÐVÖRUN! Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem framleiðandi
símans hefur samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund síma. Ef notaðar eru aðrar gerðir
gæti öll ábyrgð og samþykki sem fylgir símanum fallið niður og slíkri notkun getur fylgt
hætta.
Til athugunar: Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með
þessu símtæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar við rafstraum úr ACP-12 og LCH-12.
Seljandi tækisins veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til notkunar
með símanum.
Þegar aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
Copyright
©
2004 Nokia. All rights reserved.
14